Næsta ferð hefst 1. apríl og frá þeim degi verður ekkert stopp fyrr en í byrjun júní.
P.s. Vá hvað er langt síðan ég hef sett inn frétt á íslensku...
Ferð 2009175. 13. 22. júlí. Verð 120.000 ISK pr. mann.
Mánudagur 13. júlí
Brottför frá Ísafirði klukkan 19:00. Siglt út Ísafjarðardjúp og fyrir víkurnar Aðalvík, Fljótavík, Hlöðuvík og Hornvík. Framhjá nafnkunnum björgum og núpum: Ritur, Straumnes, Kögur, Hælavíkurbjarg. Um miðnættið förum við framhjá Hornbjargi og horfum suður strandirnar þar sem Drangajökul ber við himinn. Siglt rétt norðurfyrir heimskautsbaug og stefnan svo sett á Siglunes utan við Siglufjörð. Um miðjan þriðjudaginn ættum við að vera að koma á Skjálfandaflóa. Við munum kíkja eftir hvölum og höfrungum á leiðinni en sérstaklega ættu að vera góðar líkur á að sjá þessar skepnur þegar við nálgumst aftur land utan við Eyjafjörð og Skjálfanda. Við áætlum að vera við bryggju á Húsavík snemma kvölds. Þar verður borðaður kvöldmatur og sofið um borð við bryggju.
Miðvikudagur 15. júlí
Siglt af stað frá Húsavík eftir að hafa borðað morgunmat um borð. Siglt út Skjálfanda, yfir Öxarfjörð og fyrir Melrakkasléttu og Langanes. Svo suður með ströndinni með stefnu á Gletting og svo inná Seyðisfjörð. Lagst þar við bryggju og sofið þar um borð um nóttina.
Fimmtudagur 16. júlí
Haldið af stað frá Seyðisfirði um morguninn og stefna sett beint á Færeyjar. Siglingin yfir hafið er u.þ.b. 300 sjómílur og er áætlað að hún taki 40-50 klukkutíma. Við komum upp að eyjunum seinnipartinn á föstudag eða föstudagskvöld og stefnum á Djúpið (Djúpini). Siglt inn Djúpið, inn á Fuglafjörð og lagst þar við bryggju.
Laugardagur 18. júlí
Haldið kyrru fyrir í Fuglafirði. Tækifæri til að fara í land og skoða umhverfið. Gist um borð í Auroru við bryggju.
Sunnudagur 19. júlí
Siglt yfir í Klaksvík og lagst þar við bryggju. Farið í land og umhverfið skoðað. Gist um borð við bryggju.
Mánudagur 20 júlí
Siglt frá Klaksvík yfir í Götu og lagst þar við akkeri eða bundið við bryggju. Legið þar um nóttina.
Þriðjudagur 21 júlí
Siglt frá Götu til Þórshafnar. Komið þangað seinnipart dags. Fyrri hluta ferðarinnar lýkur í dag. Heildarsigling u.þ.b. 700 sjómílur. Gestir geta flogið heim eða eytt meiri tíma á eigin vegum í Færeyjum.
---------------
Miðvikudagur 22 júlí til laugardagur 25. júlí verður skútan í Götu þar sem fram fer tónlistarhátíðin G-festival.
---------------
Ferð 2009185. 25. - 31. júlí. Verð 90.000 ISK pr mann.
Laugardagur 25. júlí
Seinni hluti ferðarinnar hefst í dag. Mæting um borð í AURORU þar sem hún liggur í Götu. Síðasta kvöld tónlistarhátíðarinnar. Við hvetjum fólk eindregið til að koma til Færeyja fyrr og eyða tíma í eyjunum á eigin vegum.
Sunnudagur 26 júlí
Brottför frá Götu snemma um morguninn. Siglt suður fyrir Straumey, fyrir Kirkjubæjanes. Þaðan höfum við eyjuna Hest á stjórnborða, siglum sunnan við Voga og Mykines og tökum stefnu á Vestmannaeyjar. Leiðin yfir hafið er u.þ.b. 400 sjómílur og er áætlað að hún taki 50-65 tíma. Við áætlum því að vera í höfn í Vestmannaeyjum um miðjan dag á þriðjudegi eða aðfararnótt miðvikudags. Lagst þar við bryggju.
Miðvikudagur 29. júlí
Siglt frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Siglt fyrir Reykjanes, komið í höfn um kvöldið. Lagst þar við bryggju og legið þar um nóttina.
Fimmtudagur 30. júlí
Lagt af stað snemma um morguninn áleiðis til Ísafjarðar.
Föstudagur 31. júlí
Komið til Ísafjarðar um hádegið. Heildarsigling u.þ.b. 700 sjómílur.
Hér ætlum við að byggja upp hluta vefjarins á íslensku. Til að byrja með verður einungis um að ræða fréttir og ferðatilboð. Síðan er bara um að gera að hafa samband og fá tilboð í ferðir. Vegna mjög skakks gengis þessa dagana, viljum við biðja íslenska ferðalanga ekki að örvænta. Við munum ekki umbreyta evruverðunum miðað við gengi dagsins.
Nánar um þetta næstu daga.
We had a great trip. The company was outstanding, the food was excellent and each night we arrived to the comfort of the boat exhausted. Thanks so much for the fun and adventure.
"